Námsferð til Helsinki
Starfsmenn Undralands lögðu land undir fót í námsferð til Helsinki

Starfsfólk Undralands fór nýverið í afar fróðlega og skemmtilega námsferð til Helsinki í Finnlandi. Markmið ferðarinnar var að kynnast starfsháttum finnskra leikskóla og sækja innblástur til okkar eigin starfs.
Á fyrsta degi heimsóttum við eyjuna Suomenlinna, þar sem við skoðuðum skóla-búðir sem finnsk börn sækja og dvelja í, í nokkra daga í senn. Þar fengum við að taka þátt í skemmtilegum ratleik um eyjuna, sem gaf okkur hugmyndir að fjölbreyttum verkefnum og samvinnuæfingum sem hægt er að nýta með börnum. Það var bæði fræðandi og skemmtilegt að upplifa hvernig þau flétta náminu inn í leik og hreyfingu.
Leiðsögukonan okkar kynnti okkur einnig fyrir ýmsum áhugaverðum stöðum í Helsinki. Meðal annars heimsóttum við safn sem er sérstaklega ætlað börnum. Þar fengum við innsýn í líf fyrri tíma; skoðuðum gamlar skólastofur, leikföng og heimili eins og þau litu út áður fyrr. Safnið vakti mikinn áhuga og gaf okkur góðar hugmyndir að því hvernig hægt er að miðla sögu og menningu á lifandi og aðgengilegan hátt fyrir börn.
Á öðrum degi heimsóttum við leikskóla í Kerava sem staðsettur er við skóg sem er mikið nýttur í útikennslu. Þar fengum við að skoða leikskólann og fræðast um þeirra starf. Við fylgdumst með útikennslu og tókum þátt í starfinu með börnunum. Við lærðum um verkefnin sem þau vinna og þær áskoranir sem fylgja útikennslu hjá þeim. Til dæmis þarf að hafa varann á gagnvart ákveðinni eitraðri snákategund sem finnst á svæðinu, sem var áhugavert að heyra um þar sem slíkt er ekki hluti af okkar daglega starfi. Börnin eru því ávallt vel útbúin í skóginum og talað um að útifötin séu þeirra vinnuklæðnaður.
Við vorum öll sammála um að starfshættir leikskólans og áherslur í útikennslu væru að mörgu leyti svipaðar því sem við þekkjum úr okkar eigin starfi í Undralandi. Það var ánægjulegt að sjá að við erum á réttri leið og að starf okkar stenst vel samanburð við það sem gerist í finnskum leikskólum.
Ferðin var í alla staði mjög vel heppnuð, bæði lærdómsrík og hvetjandi. Við komum heim með nýjar hugmyndir og aukinn kraft til að halda áfram að þróa starfið okkar til hagsbóta fyrir börnin.

Recent Posts


