Lubba- og lestrarátak í Undralandi

Lubba- og lestrarátak í Undralandi – marsmánuður
Í mars ætlum við að vera með skemmtilegt Lubba- og lestrarátak í Undralandi. Markmiðið er að efla málþroska barnanna, auka áhuga þeirra á bókum og styrkja samstarf heimilis og leikskóla í kringum læsi og málörvun.
Lubbi gegnir mikilvægu hlutverki í málræktarstarfinu og hjálpar börnum að tengja saman hljóð og stafi á leikandi og skemmtilegan hátt. Foreldrar eru hvattir til að kynna sér málhljóð sín og barna sinna og ræða þau heima. Hægt er að horfa á barnakór syngja öll Lubba-lögin á YouTube þar sem einnig má sjá táknin sem fylgja. Einnig er hægt að horfa á stutta Lubba-þætti í Sjónvarp Símans.
Lestrarátak
Í tengslum við verkefnið fer fram lestrarátak þar sem börnin skrá á morgnana hvaða bók var lesin heima daginn áður. Bókin má vera af hvaða tagi sem er – aðalatriðið er samveran og lesturinn.
Reglulegur lestur og samtal um efni bókarinnar styður við orðaforða, lesskilning og tjáningu barnanna og er mikilvægur þáttur í málörvun.
Bók dagsins – barn kynnir bók
Eitt barn á dag fær tækifæri til að koma með bók að heiman eða af bókasafni og kynna hana fyrir hinum börnunum í samverustund. Verkefnið er liður í að efla sjálfstraust, tjáningu og frásagnarhæfni barnanna ásamt því að deila lestraráhuga með hópnum.
Samstarf við bókasafnið
Bókasafnið tekur þátt í verkefninu og verður nýtt fjölbreytt úrval bóka þaðan til að styðja við átakið. Hvatt er til þess að nýta bókasafnið reglulega og gera lestur að ánægjulegri og uppbyggilegri samverustund.
Fram undan er skemmtilegur og lærdómsríkur mánuður þar sem Lubbi og bækurnar fá að njóta sín í öflugri málrækt og lestrargleði.
