Leikskólinn Undraland Flúðum
Aga- og uppeldisstefna
Leiðir að vellíðan og góðri sjálfsmynd
- Eitt helsta hlutverk okkar á Undralandi er að stuðla að vellíðan barna í starfi og leik ásamt því að efla félagsleg samskipti.
- Ef barninu líður vel er það líklegra til að vera sterkara í félagslegum samskiptum, sem er grunnur að góðri sjálfsmynd
- Í því felst m.a. að tjá sig og setja sjálfum sér og öðrum mörk.
- Leiðir okkar til að ýta undir jákvæða hegðun er meðal annars myndrænt skipulag, skýr fyrirmæli, boðskiptafærni Bínu, félagsfærnisögur,hvetja og hrósa fyrir það sem vel er gert.
- Gott samstarf heimilis og leikskóla er grundvallaratriði.
- Verum öll góðar fyrirmyndir í orði og verki.
Orðin sem við notum í okkar samskiptum við börnin eru:
Gott að sjá þig
Viltu aðstoð ?
Prófa þú fyrst, svo skal ég hjálpa þér
Gott hjá þér að reyna sjálf/ur, ég sá það
Þú varst/ert duglegur
Nú ertu að gleyma þér
Við erum að fara
Nú þarft þú að stoppa og hugsa
Við ætlum að skiptast á
Þú ert góður vinur
Það má ruglast
Við stjórnum okkur
Þú varst dugleg/ur að stjórna þér
Þú stendur þig vel
Við notum stutt skýr skilaboð/fyrirmæli
- Gefum barninu stutt skýr skilaboð sem taka mið af aldri og þroska.
- Við gefum barninu smá stund til að bregðast við
t.d. eftir smá stund erum við að fara út
- Ef barnið bregst ekki við skilaboðunum þá segjum við; nú ætla ég að hjálpa þér…
- Við segjum; nú erum við að fara út en ekki viltu koma út
- Skýr skilaboð um það sem má og ekki má með myndrænum fyrirmælum á veggjum
- Við notum hrós fyrir það sem vel er gert og hvetjum börnin
- Sýnum hlýtt viðmót og notum skýr skilaboð
- Nýtum virka hlustun og virðingu fyrir því sem börnin eru að segja og aðstoðum þau viðað leysa ágreining sjálf eða hjálpum þeim með leiðir að því öll hegðun hefur tilgang við leitum leiða til að greina hegðun og aðstoða barnið
- Við erum fyrirmynd tölum ekki yfir börnunum um þau né aðra
Vænlegar leiðir til árangurs
- Fylgjumst með börnunum í leik og starfi grípum það jákvæða og hrósum fyrir það og hvetjum þau áfram
- Leitum leiða til að skilja hvað stendur að baki óæskilegri hegðun.
- Ef óæskileg hegðun á sér stað þá tökum við barnið út úr aðstæðum náum samtali við börnin með því að leiða hugann að einhverju öðru eða leysum ágrenninginn
- Við setjum börnin aldrei í einveru
- Kennum og þjálfum leiðir til jákvæðar hegðunar
Agastefna Undralands snýst um að
- Bera virðingu fyrir tilfinningum og hegðun barna og starfsfólks
- Finna leiðir til að vera skrefi á undan til að fyrirbyggja óæskilega hegðun
- Finna ástæðuna á bak við hegðun með skráningum og íhlutun
- Efla sjálfsmynd barna
- Vinna að starfsöryggi og vellíðan í starfi
- Hafa skýr viðmið og skilaboð til að allir viti til hvers er ætlast af þeim
- Skýr skilaboð séu notuð í öllum aðstæðum, úti og inni til kennslu
- Samræma aðferðir starfsfólks og viðbrögð við erfiðri hegðun
- Efla samkennd allra á Undralandi
- Mikilvægi þess er að muna að þegar óæskileg hegðun er búin þá horfum við fram á veginn og stöldrum ekki við þar.
- Vellíðan allra skiptir máli
Af hverju er agastefna í leikskólanum Undralandi?
- Höfum í huga að skapferli og þroski barna er mismunandi og tekur mislangan tíma hjá börnum að eflast og þroskast í leikskólaumhverfinu.
- Virðum margbreytileikann, styrkleika og veikleika hvers og eins og tilfinningar.
- Virðum þann tíma sem þau þurfa til að læra
- Öll hegðun er lærð hvort sem hún er rétt eða röng. Með því að nýta agastefnu þá erum við að vinna að sömu markmiðum alla daga alltaf með skýrt samræmt verklag.
- Börnin eru að læra boðskipti og samskipti, þau þurfa tækifæri til að æfa sig í öllum aðstæðum
Munum að allir eru góðir í einhverju enginn er góður í öllu.
Við gerum eins vel og við getum
Leikskólinn Undraland 845 Flúðum 4806620 undraland@undraland.is