|
Skrifað af: Eydís Helgadóttir
|
|
Þriðjudagur, 19. janúar 2010 14:47 |
|
Í leikskólanum okkar hefur Tákn með tali verið notað í nokkur ár. Tákn með tali (TMT) er leið til tjáskipta jafnframt því sem hún örvar málvitund og málskilning barnsins.
Sú nýbreytni var tekin upp nú um áramót að senda tákn vikunnar heim til allra foreldra með tölvupósti. Markmiðið er að gera táknin sýnilegri og aðgengilegri og hjálpa okkur þannig að nota þau sem oftast og víðast. Börnin eru dugleg að tileinka sér og nota Tákn með tali ásamt því að finna upp ný tákn séu þau ekki til.
Fyrstu táknin sem fóru heim voru tákn hvers og eins barns. Þessa vikuna er það táknið fyrir mjólk sem við leggjum inn.
Hvetjum ykkur til að skoða heimasíðu TMT http://www.tmt.is/
|