|
Skrifað af: Eydís Helgadóttir
|
|
Fimmtudagur, 14. janúar 2010 11:14 |
|
Gleðilegt ár og takk fyrir það sem er að líða.
Okkur langar að þakka fyrir þær fjölmörgu gjafir sem leikskólin fékk nú í desember.
Sú hefð hefur skapast undanfarin ár að leikskólabörn og foreldrar þeirra hafa gefið leikskólanum jólagjöf og þá gjarnan í formi bóka. Í ár fengum við margar og skemmtilegar bækur sem gleðja litla lestrarhesta. Einnig fengum við stóra og veglega tréteninga sem eiga eftir að nýtast okkur á fjölbreyttan hátt í námi og leik.
Heimsókn í Heimaland er einnig orðinn fastur liður í desember, margir hitta þar afa og ömmu, frænku og frænda. Í Heimaland er gott og gaman að koma, börnin fá að kynnast starfseminni og fólkinu og fá jafnframt tækifæri til að kynna sig og segja hvaðan þau eru. Við fáum höfðinglegar móttökur og veitingar og erum þar að auki leist út með gjöfum;heimaprjónuðum leistum, vettlingum og peysum. Þessar gjafir koma í góðar þarfir þegar kuldinn bítur í litla kroppa.
Kæru sveitungar, takk kærlega fyrir okkur.
Börn og starfsfólk Undralands.
|