|
Skrifað af: Halldóra Halldórsdóttir
|
|
Þriðjudagur, 15. júní 2010 12:56 |
|
Í þessari viku er Skógarvika og höfum við leikið okkur í Kvenfélagsskóginum og í lundinum við Hryggjarholti. Á morgun förum við í Kvenfélagsskóginn og grillum okkur brauð á grein og skemmtum okkur í stöðvavinnu.
|
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 15. júní 2010 13:00 |
|
|
Skrifað af: Halldóra Halldórsdóttir
|
|
Mánudagur, 07. júní 2010 08:49 |
|
Í þessari viku er fjallgönguvika og er stefnan tekin á hina ýmsu hóla og hæðir hér í nágerninu. Á morgun höldum við á Miðfell og göngum yfir fjallið og grillum heima hjá Öddu Siggu, Móakotsbörnin verða keyrð báðar leiðir, Heiðarkotsbörnin verða keyrð til baka í leikskólann og Skógarkotsbörnin ganga til baka meðfram fjallinu. Þeir foreldrar sem hafa áhuga á því að koma með eru velkomnir. Göngugarparnir leggja af stað frá leikskólanum kl. 9:00. |
|
Skrifað af: Halldóra Halldórsdóttir
|
|
Þriðjudagur, 01. júní 2010 14:01 |
|
Í þessari viku erum við með Garðyrkjuviku. Þá setjum við niður kartöflur, förum í heimsóknir á garðyrkjustöðvar og fáum jafnvel plöntur hjá þeim.
Í júní verða allir dagar dótadagar. |
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 01. júní 2010 14:04 |
|
Skrifað af: Halldóra Halldórsdóttir
|
|
Föstudagur, 14. maí 2010 14:06 |
|
Vorsýning
Okkar árlega Vorsýning verður haldin í leikskólanum Undralandi föstudaginn 21. maí frá kl:16.00-18.00.
Allir eru velkomnir í leikskólann að líta á verk barnanna.
Klukkan 16:30 syngja leikskólabörnin nokkur lög fyrir gesti.
Foreldrafélagið verður með kökubasar í leikskólanum á meðan sýningu stendur, í fyrra fengu færri en vildu.
Tilvalið er að enda vikuna á að mæta á þennan menningarviðburð og njóta listarinnar sem hinir ungu listamenn hafa skapað og krækja sér í köku.
Vorsýningin er hluti af menningu og hefðum leikskólans og uppskeruhátíð barnanna. |
|
Skrifað af: Halldóra Halldórsdóttir
|
|
Miðvikudagur, 05. maí 2010 15:20 |
|
Í þessari viku fara fram foreldrasamtöl. |
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 05. maí 2010 15:21 |
|
|
|
|
|
|
Síða 2 af 8 |