Home
Leikskólinn Undraland
Tákn vikunnar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Eydís Helgadóttir   
Þriðjudagur, 19. janúar 2010 14:47

Í leikskólanum okkar hefur Tákn með tali verið notað í nokkur ár. Tákn með tali (TMT) er leið til tjáskipta jafnframt því sem hún örvar málvitund og málskilning barnsins.

Sú nýbreytni var tekin upp nú um áramót að senda tákn vikunnar heim til allra foreldra með tölvupósti.  Markmiðið er að gera táknin sýnilegri og aðgengilegri og hjálpa okkur þannig að nota þau sem oftast og víðast.  Börnin eru dugleg að tileinka sér og nota Tákn með tali ásamt því að finna upp ný tákn séu þau ekki til.

Fyrstu táknin sem fóru heim voru tákn hvers og eins barns.  Þessa vikuna er það táknið fyrir mjólk sem við leggjum inn. 

Hvetjum ykkur til að skoða heimasíðu TMT http://www.tmt.is/

 
Gleðilegt ár Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Eydís Helgadóttir   
Fimmtudagur, 14. janúar 2010 11:14

Gleðilegt ár og takk fyrir það sem er að líða.

Okkur langar að þakka fyrir þær fjölmörgu gjafir sem leikskólin fékk nú í desember.

Sú hefð hefur skapast undanfarin ár að leikskólabörn og foreldrar þeirra hafa gefið leikskólanum jólagjöf og þá gjarnan í formi bóka.  Í ár fengum við margar og skemmtilegar bækur sem gleðja litla lestrarhesta.  Einnig fengum við stóra og veglega tréteninga sem eiga eftir að nýtast okkur á fjölbreyttan hátt í námi og leik. 

Heimsókn í Heimaland er einnig orðinn fastur liður í desember, margir hitta þar afa og ömmu, frænku og frænda.  Í Heimaland er gott og gaman að koma, börnin fá að kynnast starfseminni og fólkinu og fá jafnframt tækifæri til að kynna sig og segja hvaðan þau eru. Við fáum höfðinglegar móttökur og veitingar og erum þar að auki leist út með gjöfum;heimaprjónuðum leistum, vettlingum og peysum. Þessar gjafir koma í góðar þarfir þegar kuldinn bítur í litla kroppa.

Kæru sveitungar, takk kærlega fyrir okkur.

Börn og starfsfólk Undralands.

 
Breyting á gjaldskrá Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Eydís Helgadóttir   
Fimmtudagur, 14. janúar 2010 11:10

Samþykkt var á hreppsnefndarfundi 9.desember síðastliðinn hækkun á gjaldskrá leikskólans  um 3%.  Matar- og hressingargjald  hækkar um 10%. 

Hækkunin mun taka gildi frá og með 1.janúar 2010.

 
Jólin Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Halldóra Halldórsdóttir   
Þriðjudagur, 22. desember 2009 15:37

 

Börn og starfsfólk óska öllum gleði og friðar yfir hátíðarnar.

Gleðileg jól

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 22. desember 2009 15:41
 
Fagnaðarfundur og jólaljós Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Halldóra Halldórsdóttir   
Föstudagur, 27. nóvember 2009 12:24

 

Á þriðjudaginn 1.desember verður Móakot með fagnaðarfund kl 9:30 og í framhaldi af honum kveikjum við á jólaljósum á litla krúttlega jólatrénu okkar. Allir velkomnir. Þetta er upphafið af notalegri aðventu hjá okkur í leikskólanum.

Ljósakveðja frá Undralandi

 
«FyrstaFyrri12345678NæstaSíðasta»

Síða 5 af 8

Leikskólinn Undraland, Hrunamannahreppi, 845 Flúðir

Sími: 480 6620 Netfang: undraland@undraland.is

Höfundarréttur © 2010 Leikskólinn Undraland. Öll réttindi áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL leyfi.