|
Skrifað af: Eydís Helgadóttir
|
|
Mánudagur, 08. febrúar 2010 12:20 |
|
Tákn vikunnar eða öllu heldur setning er spurningin:
Hvar átt þú heima?
http://www.tmt.is
|
|
|
Skrifað af: Eydís Helgadóttir
|
|
Fimmtudagur, 04. febrúar 2010 16:14 |
|
Í tilefni af Degi leikskólans sem er 6. febrúar ár hvert
opna nemendur Undralands listaverkasýningu.
Sýningin opnar formlega á morgun 5. febrúar kl: 9.30 í Samkaup/Strax. Verkin sem eru til sýnis eru tileinkuð Karladeginum okkar.
Unga listafólkið mun taka lagið við opnunina og gefst gestum hér einstakt tækifæri til að heyra í listamönnunum og spjalla við þá sjálfa um verkin.
Sýningin verður opin út febrúarmánuð á opnunartíma Samkaup/Strax.
Allir velkomnir.
Hlakka til að sjá ykkur.
Kveðja Eydís Helgadóttir
Læt fylgja hér slóðir með lesefni um Dag leikskólans.
http://roggur.blog.is/blog/kristindyr/entry/769770/
http://bella.mrn.stjr.is/utgafur/dagur_leikskolans.pdf |
|
"Í leikskóla er gaman..." |
|
|
|
|
Skrifað af: Eydís Helgadóttir
|
|
Fimmtudagur, 28. janúar 2010 11:32 |
|
Nú er viðburðaríkur og skemmtilegur janúar að kveðja okkur. Góð mæting var á karladaginn okkar og gaman að sjá hversu margir gáfu sér tíma til að líta við og taka þátt í leik og starfi barnanna sinna, þetta var einstaklega skemmtilegur dagur. Af fleiri góðum dögum má nefna þorrablótið, allir smökkuðu hákarlinn og vakti hann mis mikla lukku hjá bragðkirlum barnanna.
Heiðarkotsbúar héldu bráðskemmtilegann Fagnaðarfund þar sem þau fluttu leikrit sem byggt var á sögunni um Grísina þrjá.
Framundan er spennandi febrúarmánuður með fjöldann allan af skemmtilegum viðburðum. Febrúardagatalið er komið inn á heimasíðuna.
Hvet ykkur til að lesa blogg deildanna og skoða myndirnar úr starfi og leik. |
|
Skrifað af: Eydís Helgadóttir
|
|
Mánudagur, 25. janúar 2010 10:22 |
|
Tákn vikunnar er: Góðan dag. |
|
Skrifað af: Eydís Helgadóttir
|
|
Mánudagur, 25. janúar 2010 09:10 |
|
Fagnaðarfundur sem vera átti þriðjudaginn 26. janúar frestast fram á fimmtudaginn 28. janúar á sama tíma kl: 9.40.
Allir velkomnir. |
|
|
|
|
|
|
Síða 4 af 8 |