Home
Leikskólinn Undraland
Vorhátíð Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Halldóra Halldórsdóttir   
Miðvikudagur, 21. apríl 2010 15:57

Í dag kvöddum við veturinn með Vorhátiðinni okkar. Við fórum snemma út og fórum í leiki, parís, smíðuðum, krítuðum og lékum með fallhlífina. Hamborgarar voru settir á grillið og fór borðhald fram undir berum himni.   1. og 2. bekkur komu og skemmtu sér með okkur. Öll börnin fengu andlitsmálun sem vakti mikla lukku.

 

Takk fyrir veturinn og Gleðilegt sumar.Cool

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 21. apríl 2010 16:05
 
Afmæli Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Halldóra Halldórsdóttir   
Þriðjudagur, 06. apríl 2010 11:04

 

Leikskólinn okkar á afmæli í dag. Í tilefni dagsins komum við öll saman og sungum afmælissönginn og borðuðum popp. Börnin sögðu okkur hvað þeim þætti skemmtilegast í leikskólanum og hvar þeim liði best í leikskólanum. Börnin gerðu svo myndverk "ég og leikskólinn minn".

Til hamingju með daginn.

 
Páskar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Halldóra Halldórsdóttir   
Miðvikudagur, 31. mars 2010 10:57

 

Við óskum ykkur Gleðilegra Páska Innocent

 

 

 
Tákn vikunnar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Eydís Helgadóttir   
Miðvikudagur, 24. febrúar 2010 15:11

Tákn vikunnar er:

Hvað heitir þú?

 

Skoðið endilega tákn með tali síðuna:

http://www.tmt.is/forsida.htm

 
Kerlingadagur Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Eydís Helgadóttir   
Miðvikudagur, 24. febrúar 2010 13:46

Í janúar og febrúar eru sérstakir karla- og kerlingadagar hér í leikskólanum Undralandi. Upphaf þessara daga var að Halldóra Halldórsdóttir vann rannsókn um, viðhorf feðra til sona sinna, í lokaritgerð sinni til B.ed.gráðu í leikskólafræðum frá Háskólanum á Akureyri 2006.  Í rannsókninni kom í ljós hversu lítil þátttaka feðra væri í samstarfi heimilis og skóla og lagði til að sérstakir karladagar væru settir á í leikskólanum og til að gæta jafnræðis væru líka kerlingadagar. Tilgangurinn með þessum dögum var að virkja foreldrasamstarfið og þá sérstaklega feðurna.

        Okkur fannst að leikskólinn þyrfti að leggja ríkari áherslu á að fá feður í meira samstarf. Mikilvægt er að gott samstarf sé á milli heimilis og skóla. Ekki eingöngu til þess að börnunum líði vel, heldur líka foreldrum og leikskólakennurum.

Tilfinning okkar er sú að foreldrar séu öruggari með leikskólann og við sjáum aukningu á þátttöku feðra í samstarfi heimilis og skóla.

        Til þess að sem flestir geti mætt á karla- og kerlingadegi höfum við leikskólann opinn upp á gátt allan daginn til þess að allir hafi tækifæri til þess að koma og verja tíma með barninu sínu í leikskólanum, hvort það sé í hópastarfi, söngstund, matartíma, hvíld, í leik úti sem inni eða hverju sem við tökum okkur fyrir hendur. Flestir gefa sér góðan tíma og leika sér með börnunum. Það má segja að þessir dagar hafi slegið í gegn, bæði með mjög góðri mætingu foreldra  og tilhlökkun barnanna. Undirbúningur fyrir þessa daga fer fram í vikunni fyrir þar sem börnin búa til boðskort. Kennarar ræða við börnin um það hvað karlar/kerlingar gera og teikna eða mála myndir af feðrum/mæðrum sínum. Þó að þessir sérstöku dagar séu hjá okkur eru að sjálfsögðu allir velkomnir til okkar.

Kerlingadagurinn var í gær og langar okkur að þakka öllum Kerlingunum sem heimsóttu börnin sín í leikskólann og tóku þátt í líflegum og skemmtilegum degi með okkur.

 
«FyrstaFyrri12345678NæstaSíðasta»

Síða 3 af 8

Leikskólinn Undraland, Hrunamannahreppi, 845 Flúðir

Sími: 480 6620 Netfang: undraland@undraland.is

Höfundarréttur © 2010 Leikskólinn Undraland. Öll réttindi áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL leyfi.